9 mm þykkt leðurbelti sem veitir góðan stðuning
10 cm breitt að aftan og mjókkar niður í 6 cm fyrir aukið svigrúm í hreyfingu
Silgjan á beltinu er extra þunn (en samt sterk, patent pending) svo að hún verði ekki fyrir stönginni í ólympískum lyftingum
Stillanleg málmlykkja heldur lausum enda beltisins á sínum stað
Framleitt úr bresku nautaleðri og vottað af IWF
Sjá stærðarvísi neðar á síðunni
SBD ólympíska leðurbeltið er hannað fyrir lyftingafólk sem vill traustan stuðning án þess að fórna hreyfanleika. Beltið er 9 mm þykkt og gert úr tveimur ólíkum leðurlögum sem hjálpa því að halda stuðningi sínum um leið og það mótast að mittinu.
Breiddin fer úr 10 cm niður í 6 cm og gefur þannig meira svigrúm við lyftingar. Sylgjan er hönnuð til að auðvelda bæði spennu og losun, jafnvel í þröngri stillingu, og færanleg málmlykkja heldur endanum þar sem þú vilt hafa hann. Silgjan er extra þunn svo að hún sé ekki fyrir í lyftingunum.
Beltið er með svörtu, olíubornu leðri að utan og rauðu rúskinni að innan. Það er þróað í samstarfi við afreksíþróttafólk, þjálfara og heilbrigðisstarfsfólk og framleitt í höfuðstöðvum SBD í Sheffield á Englandi.
Stærðarvísir
Mældu ummálið þar sem beltið mun sitja, yfirleitt rétt ofan við nafla, með kviðvöðvana spennta. Ekki miða við buxnastærð. Ef þú átt belti geturðu mælt innanmál þess í þrengstu stillingunni sem þú notar.
Veldu helst stærð þar sem mælingin þín er nálægt miðju stærðarbilsins. Þá hefurðu svigrúm til að herða eða losa beltið eftir æfingu, fatnaði og breytingum á líkamsþyngd.
|
Stærð |
Ummál |
|---|---|
|
XS |
57,5–70 cm |
|
S |
65–80 cm |
|
M |
72,5–90 cm |
|
L |
80–100 cm |
|
XL |
87,5–110 cm |
|
2XL |
95–120 cm |
|
3XL |
102,5–130 cm |
|
4XL |
110–140 cm |
|
5XL |
117,5–150 cm |
Umhirða
Berðu venjulegan svartan skóáburð á ytra leðrið á 1–3 mánaða fresti og pússaðu með klút. Forðastu að láta beltið detta og ekki kasta því, þar sem það getur skemmt sylgjuna.