Veita úlnliðunum góðan stuðning í snörun og jafnhendingu
Sérhannað ofið efni mótast að úlnliðnum þegar vafningarnir eru hertir
Val um tvær lengdir og tvær stærðir
Breiðari vafningarnir henta stærri úlnliðum
Lengri vafningarnir veita meiri stuðning en hefta meira hreyfingu
Vafningarnar eru með þunnum spotta sem „læsir“ þeim á úlnliðinn í staðinn fyrir franskan lás sem getur tekið talsvert pláss
Seldir í pari, framleiddir í Bretlandi og vottaðir af IWF
Sjá stærðarvísi neðar á síðunni
SBD ólympísku úlnliðsvafningarnir eru hannaðir til að styðja úlnliðina í snörun og jafnhendingu. Sérhannað ofið efnið fellur þétt að úlnliðnum og veitir stuðning bæði á æfingum og í keppni.
Þú stjórnar stuðningnum með því hversu þétt þú vefur og hversu marga hringi þú ferð um úlnliðinn. Mjótt bindiband heldur vafningnum föstum án þess að raska lögun hans eða þægindum.
Vafningarnir eru þróaðir í samstarfi við afreksíþróttafólk, þjálfara og heilbrigðisstarfsfólk og framleiddir í höfuðstöðvum SBD í Sheffield á Englandi.
Stærðarvísir
SBD mælir með að flestir byrji á 80 cm lengd og 8 cm breidd. Sú samsetning veitir góðan stuðning og er fljótleg í ásetningu. Fyrir minni úlnliði hentar 6,5 cm breiddin betur.
|
Breidd |
Hentar fyrir |
|---|---|
|
6,5 cm |
Minni úlnliði |
|
8 cm |
Meðalstóra og stærri úlnliði |
|
Lengd |
Stuðningur og notkun |
|---|---|
|
80 cm |
Góður stuðningur með færri vafningum og fljótlegri ásetningu |
|
120 cm |
Fleiri vafningar fyrir meiri stuðning og minni hreyfingu í úlnliðnum |
Umhirða
Handþvoðu vafningana með volgu vatni og mildu þvottaefni og láttu þá loftþorna. Ekki setja í þvottavél eða þurrkara, þar sem það getur skemmt efnið.