Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.
E3 þrekþjálfinn frá Life Fitness er nánast alveg hljóðlaus og búinn eiginleikum sem geta gert æfingar heima fyrir skemmtilegar og hvetjandi. Þrekþjálfinn er vel hannaður og frábær fyrir þá sem vilja taka öfluga æfingu sem reynir á alla helstu vöðvahópa án þess að setja mikið álag á liðamót. Líkamsræktartæki frá Life Fitness eru af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta.
Mjúk náttúruleg hreyfing
Life Fitness hefur gert miklar rannsóknir á hreyfingum mannslíkamans og búið til hreyfiferil sem er líkamanum náttúrulegur og þægilegur.
Púlsmæling
Púlsmælifletir eru á handföngum ásamt því að með mælaborðinu fylgir púlsskynjari sem hægt er að festa utan um brjóstið á notanda fyrir sem nákvæmasta mælingu.
Whisperstride tækni
Viðhaldsfríar kúlulegur eru notaðar til þess að minnka hávaða eins og kostur gefst og útkoman er nánast þrekþjálfi sem er nánast alveg hljóðlaus.
Coach Zone
Coach Zone er hugbúnaður, sem stjórnað er af litlu mælaborði fyrir framan aðalmælaborðið, sem býr til æfingaprógröm sem leggja áherslu á mismunandi vöðvahópa.
Hreyfiferill minnkar álag á liðamót og hámarkar árangur
Þrekþjálfi í fullri stærð, 51cm skreflengd
Coach Zone stýrir æfingunni fyrir þig
Afar stöðugur þrekþjálfi (101kg að þyngd)
Púlsmælar í hreyfanlegu og föstu handföngunum
Whisperstride tækni gerir þrekþjálfann afar hljóðlátann
Koparfóðringar tryggja góða endingu
Val um tvö mælaborð
181kg hámarksþyngd notanda
Lífstíðarábyrgð á grind
Til á lager