Vandað samanbrjótanlegt hlaupabretti sem hannað er fyrir heimahús
V2 útgáfan – Uppfært útlit, betrumbætt mælaborð og fjöðrunarkerfi
Nær að hámarki 20km/h
Nær að hámarki 15% halla
Stórt hlaupasvæði (140x51cm)
Fjöðrunarkerfi minnkar álag á liðamót
Mælaborð sýnir lykilupplýsingar
Bluetooth tenging við snjalltæki, hægt að tengja Fitshow, Zwift, Kinomap o.fl.
Flýtihnappar fyrir hraða og halla
24 æfingakerfi í heildina
3 hestafla mótor
Hámarksþyngd notanda er 130kg
Þetta bretti þarf að smyrja reglulega með sílíkoni, sjá leiðbeiningar í flipa hér fyrir neðan
Ný sending – lægra verð!
RT50 V2 hlaupabrettið frá FitCo er vandað bretti sem hannað er fyrir heimahús. V2 útgáfan er með uppfært útlit, betrumbætt mælaborð og fjöðrunarkerfi. Brettið hentar þeim sem vilja taka kröftugar æfingar heima fyrir enda fleytir 3 hestafla mótorinn brettinu í allt að 20km/h. Hallamótorinn í brettinu er vandaður en hann nær allt að 15% halla sem að er frábær kostur fyrir þá sem vilja minnka hraðann og auka álag með hækkun. Brettið er samanbrjótanlegt en það er afar auðvelt að leggja það upp og trylla því svo um á hjólum sem eru á grunni þess.
Hlaupasvæðið á brettinu er stórt (140x51cm) svo að nóg pláss er fyrir leggjalanga. Brettið er búið fjöðrunarkerfi en undir brettinu sjálfu eru fjaðrandi punktar sem að tryggja góða fjöðrun á öllu hlaupasvæðinu. Brettið er hannað til þess að þola að hámarki 130kg notanda.
Mælaborðið á brettinu sýnir allar helstu lykilupplýsingar (tíma, hraða, halla, vegalengd, “pace”, skref, kaloríur og púls) og býður upp á 24 æfingakerfi sem hægt er að velja á milli. Uppstillingin á upplýsingum er ansi góð en hraði og halli eru alveg sér á báti beggja vegna við upplýsingaskjáinn svo að það er alltaf auðvelt að sjá þessar lykilbreytur.
Tækniupplýsingar:
Mótor: 3 hestöfl DC
Hlaupasvæði: 140x51cm
Hraði: 0,8-20km/h, 0,1km/h þrep
Halli: 0-15% rafstýrður hallamótor
Mælaborð sýnir: Tíma, hraða, halla, vegalengd, “pace”, skref, kaloríur og púls
Skjár: LCD
Æfingakerfi: 24
Flýtihnappar: 4 hraðahnappar og 4 hallahnappar
Púlsmæling: Púlsmælar eru á handföngum
Fjöðrunarkerfi: Já, nýtt og betrumbætt
Hámarksþyngd notanda: 130kg
Stærð í notkun (LxBxH): 179,5cm x 88cm x 152,5cm
Stærð kassa (LxBxH): 200cm x 96cm x 32cm
Þyngd brettis: 90kg
Þyngd kassa: 103kg
Ábyrgð: 2ár


